22. janúar 2016
22. janúar 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fíkniefnaakstur stöðvaður
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði akstur tveggja ökumann í vikunni, sem báðir reyndust vera undir áhrifum fíkniefna. Bifreið annars þeirra reyndist að auki vera á stolnum skráningarnúmerum. Hinn hafði neytt amfetamíns, kókaíns og kannabisefna, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu.