Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. febrúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fíknefnamál í Vestmannaeyjum

Í nótt var aðili handtekinn á heimili sínu í Vestmannaeyjum þar sem við leit hafði fundist nokkuð magn af ætluðu amfetamíni. Um var að ræða 50 grömm af efninu. Aðili þessi gistir nú fangageymslu en hann viðurkenndi í nótt að eiga efnið og hafa ætlað þau til sölu í Vestmannaeyjum. Þessi aðili sem er 18 ára gamall hefur ekki komið að málum tengdum fíkiefnum.