9. febrúar 2024
9. febrúar 2024
Fethiye-M kyrrsett
Flutningaskipið Fethiye-M var kyrrsett mánudaginn 5. febrúar 2024
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2N8WQS5khv87aZ0HDLE7dL/61f8e06266ce7c62bb418148959d4296/__emm.is.-0714.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Samgöngustofa - skip](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2N8WQS5khv87aZ0HDLE7dL/61f8e06266ce7c62bb418148959d4296/__emm.is.-0714.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Mánudaginn 05.02.2024 fóru starfsmenn hafnarríkiseftirlits Samgöngustofu í eftirlit um borð í flutningaskipið Fethiye-M / IMO 9485899 þegar það lá við bryggju á Grundartanga.
Við eftirlitið voru gerðar alvarlegar athugasemdir við ástand skipsins og í framhaldinu var skipið kyrrsett.
Kyrrsetningu verður aflétt þegar búið er að laga þau atriði sem sett var út á.
Uppfært: Kyrrsetningu var aflétt þann 10. febrúar eftir fullnægjandi viðgerð.