Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. maí 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ferð 10. bekkjar Patreksskóla með björgunarskipinu Verði II frá Patreksfirði.

Forvarnarfulltrúa lögreglunnar á Vestfjörðum var boðið í sjóferð með björgunarskipi Landsbjargar, Verði II, ásamt 10. bekk grunnskólans á Patreksfirði. Ferðin var farin að tilefni loka samræmdu prófanna. Ferðin var undir stjórn starfsmanns félagsmiðstöðvar og gaf nemendum færi á að fagna þessum áfanga með heilbrigðri og uppbyggjandi ævintýraferð. Undanfarið hefur lögreglan haldið fyrirlestra um vímuvarnarforvarnir í grunnskólum í Barðarstrandasýslu. Má segja að ferðin hafi samþætt skemmtunar og forvarnargildi og ánægjulegt að lögreglunni hafi verið boðið að taka þátt.