6. júlí 2023
6. júlí 2023
Federal Spey kyrrsett
Búlkskipið Federal Spey – IMO 9610456 - var kyrrsett í Straumsvík þann 5. júlí.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1jL28DfcLVz9Qdy5dBljsr/39504c32ec3edba3249be349382e2a85/15-EMM.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Kaðlar á skipi](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1jL28DfcLVz9Qdy5dBljsr/39504c32ec3edba3249be349382e2a85/15-EMM.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Búlkskipið Federal Spey – IMO 9610456 - var kyrrsett í Straumsvík þann 5. júlí. Ástæðan er sú að ekki tókst að sýna fram á virkni neyðarbúnaðar. Hefur flokkunarfélagi og fánaríki verið tilkynnt um kyrrsetninguna.
Kyrrsetningu verður aflétt þegar áhöfn sýnir fram á fullnægjandi virkni neyðarbúnaðar.
Uppfært 7.7.2023: Kyrrsetningu hefur verið aflétt þar sem sýnt hefur verið fram á viðgerð. Er skipinu því heimilt að sigla.