Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. október 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fáskrúðsfjarðarmálið – einn laus úr haldi

Karl á þrítugsaldri er laus úr haldi lögreglu en hann var handtekinn vegna rannsóknar fíkniefnamálsins á Fáskrúðsfirði. Maðurinn, sem var handtekinn 15. október sl., var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. október. Það er mat lögreglu að ekki séu lengur rannsóknarhagsmunir fyrir því að hafa hann áfram í haldi.