16. september 2026
16. september 2026
Farsæld í heilsugæslu – samstarf í þágu barna og fjölskyldna
Á Farsældardegi í Hofi þann 4. september fluttu Hafdís Erla Jóhannsdóttir Rist félagsráðgjafi og Ragnheiður Diljá Gunnarsdóttir ljósmóðir hjá Heilsugæslunni á Akureyri í Sunnuhlíð, erindi um hlutverk tengiliða farsældar í heilsugæslu.

Dagurinn er vettvangur fyrir samtal og miðlun reynslu um farsæld barna, þar sem áhersla er lögð á samþættingu þjónustu, samstarf þvert á kerfi og eflingu stuðnings við börn og fjölskyldur á svæðinu. Tengiliður farsældar er sá aðili sem hjálpar fjölskyldum að rata í gegnum þjónustukerfið til að stuðla að því að barnið fái rétta þjónustu á réttum tíma.
Í erindinu var farið yfir hvernig farsældarkerfið getur einfaldað leið barna og fjölskyldna í gegnum kerfið. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að þjónusta mismunandi aðila eins og heilsugæslu, skóla, leikskóla og annarra þjónustuaðila tali saman og að stuðningur taki mið af þörfum barnsins og fjölskyldunnar. Tengiliður farsældar getur meðal annars veitt ráðgjöf og leiðbeiningar, metið þjónustuþörf, fylgt eftir stuðningi og tengt fjölskyldur við viðeigandi úrræði.
Samþætting þjónustu byggir á samþykki fjölskyldunnar og hefur það að markmiði að skapa samfellu og draga úr því að foreldrar þurfi sjálfir að halda utan um ólíka þjónustuaðila.
Meginboðskapur erindisins var skýr: Farsæld er samstarf þar sem barnið og fjölskyldan eru í miðjunni. Með því að hlusta, bregðast snemma við og veita réttan stuðning á réttum tíma má oft koma í veg fyrir að vandi verði stærri og flóknari síðar.
Á vefsíðu SSNE er hægt að lesa meira um Farsældardaginn.
