Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Farið inn í ólæstar bifreiðar í Reykjanesbæ

Reykjanesbæ, 17. mars 2011.

Tilkynningar bárust til lögreglunnar á Suðurnesjum um að farið hafi verið inn í nokkrar bifreiðar í Reykjanesbæ s.l. nótt.

Bifreiðarnar voru ólæstar í íbúðarhverfum og var gramsað í hirslum þeirra í leit að verðmætum. Lögreglan á Suðurnesjum brýnir fyrir fólki að læsa bifreiðum sínum og geyma ekki verðmæta hluti í mannlausum bifreiðum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn