Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. nóvember 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Falsaðir 5000 krónu seðlar

Um helgina komu fram tveir, falsaðir 5000 krónu seðlar sem framvísað var í verslunum. Um er að ræða ljósrit en báðir seðlarnir bera sama númer. Af því má ráða að þeir koma frá sama aðila en mál sem þessi skjóta upp kollinum öðru hvoru. Af þeirri ástæðu biður Lögreglan í Reykjavík fólk að vera á varðbergi og hafa augun hjá sér. Ekki síst þá sem starfa við afgreiðslustörf.