Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2004

Þessi frétt er meira en árs gömul

Færri sviptir ökuréttindum

Á síðasta ári fækkaði þeim sem sviptir voru ökuréttindum á grundvelli umferðarpunkta um rúmlega helming, úr 148 ökumönnum árið 2002 í 72 í fyrra. Karlar, sem misstu ökuréttindin, eru í miklum meirihluta, eða 94%, og voru rúmlega 67% þeirra 20 ára eða yngri.

Í ársskýrslu embættis ríkislögreglustjóra fyrir árið 2003 kemur fram að sektum var beitt fyrir 40.617 umferðarlagabrot og var of hraður akstur í 21.242 tilvikum. Nánari upplýsingar um þessi atriði eru í ársskýrslunni sem er að finna hér.

Ljósmynd: Júlíus Sigurjónsson