Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. janúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fækkun hegningarlagabrota á Suðurnesjum 2010.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fækkaði hegningarlagabrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um 18% milli áranna 2009 og 2010 en 906 hegningarlagabrot/brot voru framin í umdæminu en 1105 árið á undan. Ofbeldisbrotum fækkaði um 28% en alls voru skráð 77 ofbeldisbrot árið 2010. Mest fækkun var í meiriháttar ofbeldisbrotum eða um 43% en í minniháttar ofbeldisbrotum var fækkun um 20% milli áranna 2009 og 2010. Allt frá árinu 2008 hefur ofbeldisbrotum farið fækkandi í umdæmi lögreglustjórans á Suðurnesjum.