Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. nóvember 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ertu vel upplýst/ur?

Undanfarið hefur verið mikið kvartað undan ljóslausum ökutækjum, en því miður virðast sumir nýlegir bílar aðeins ræsa stöðuljós að framan en eru þá ljóslausir að aftan. Þetta þýðir að ökumenn þurfa sjálfir að ræsa ljósin, enda er skylda að vera með ljósin kveikt í umferðinni á Íslandi.

Því miður virðast margir ekki átta sig á þessu og aka um, ljóslaus að aftan, en eru ill sýnileg öðrum vegfarendum.

Lögreglan hefur reynt að minna á þetta atriði en lítið hefur batnað og því má búast við að lögreglan sinni sérstöku eftirliti með þessum atriðum yfir dimmustu mánuðina. Við hvetjum því ökumenn til að gæta að sínum ökutækum, að þau séu vel upplýst og forðast þannig óhöpp, tafir og jafnvel sektir.