Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. júní 2017

Þessi frétt er meira en árs gömul

Erlendur ferðamaður látinn í umferðarslysi.


Þýskur karlmaður, ferðamaður á sjötugsaldri, sem fluttur var á sjúkrahús í Reykjavík eftir að bifreið hans og hjólhýsi sem hún dró fuku út af Suðurlandsvegi við Freysnes 1. júní s.l. er látinn. Kona hans, sem einnig var í bílnum, slasaðist minna og hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Slysið, og tildrög þess, er til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi. Ekki er unnt að veita upplýsingar um nafn hins látna að svo stöddu.