Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Enn á nagladekkjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði sjö ökumenn í gær en hinir sömu voru allir á bílum á nagladekkjum en það er óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Lögreglan ítrekar enn þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.