Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. maí 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Enn á nagladekkjum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði þrjá ökumenn í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er með öllu óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Það sem af er vikunni hafa á þriðja tug ökumanna verið stöðvaðir í umdæminu fyrir þessar sakir.

Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.