28. september 2026
28. september 2026
Embla verður lögð niður og nýtt þjónustu- og gagnakerfi tekur við
Jafnréttisstofa vekur athygli á að launagreiningartólinu Emblu verður lokað 1. október.

Jafnréttisstofa vekur athygli á að launagreiningartólinu Emblu verður lokað 1. október. Nýtt þjónustu- og gagnakerfi Jafnréttisstofu hefur verið tekið í notkun, en það styður meðal annars við skýrslugjöf atvinnurekenda um kynbundinn launamun samkvæmt nýjum reglum.
Nýja kerfið mun einfalda samskipti við Jafnréttisstofu og skapa sameiginlegan vettvang fyrir skil gagna, miðlun upplýsinga og eftirfylgni vegna skyldubundinna skila atvinnurekenda á gögnum sem tengjast kynbundnum launamun.
Með innleiðingu nýja kerfisins er stigið mikilvægt skref í átt að skilvirkari, öruggari og notendavænni stjórnsýslu vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun.
Nánari upplýsingar um aðgang að kerfinu og framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun er að finna á vef Jafnréttisstofu.