26. júní 2024
26. júní 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu auglýst laust til umsóknar
Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu.
Forsætisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu.
Meðal verkefna Jafnréttisstofu er að hafa eftirlit með framkvæmd laga á sviði jafnréttismála, sjá um fræðslu og upplýsingastarfsemi, veita ráðgjöf og aðstoð á sviði jafnréttismála, koma á framfæri ábendingum og tillögum til að ná fram auknu jafnrétti og fylgjast með þróun jafnréttismála í þjóðfélaginu og á alþjóðavettvangi, m.a. með upplýsingaöflun og rannsóknum. Einnig að vinna að forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi í samvinnu við hlutaðeigandi stjórnvöld og samtök. Þá sinnir stofnunin eftirfylgni með jafnlaunavottun og jafnlaunastaðfestingu. Jafnréttisstofa er staðsett á Akureyri.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Gerð er krafa um reynslu af stjórnun og mannauðsmálum
Gott vald á íslensku og færni til að koma fram og tjá sig í ræðu og riti
Góð kunnátta í ensku og kunnátta í einu Norðurlandamáli er kostur
Leiðtogahæfileikar
Samskiptafærni og hæfni til að miðla upplýsingum
Þekking og reynsla á sviði jafnréttismála
Framsýni, metnaður og vilji til að ná árangri
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
Þekking og reynsla af stefnumótun, stjórnun og rekstri á sviði opinberrar stjórnsýslu sem nýtist á starfssviði stofnunarinnar.