Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. mars 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir á laugardag og fimm á sunnudag. Níu voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Mosfellsbæ. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 20-50 ára og fjórar konur, 18-29 ára.