Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. janúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrír voru stöðvaðir á föstudag, fimm á laugardag og þrír á sunnudag. Níu voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 16-50 ára og fjórar konur, 17-30 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.