Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ellefu teknir fyrir ölvunarakstur

Ellefu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm voru stöðvaðir í Kópavogi, fjórir í Reykjavík og tveir í Hafnarfirði. Þetta voru níu karlar og tvær konur en fólkið er á ýmsum aldri. Sá elsti er karl á níræðisaldri en yngst í hópnum er 19 ára stúlka. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en sá var með barnið sitt í bílnum þegar lögreglan stöðvaði för hans.