Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. desember 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Eldur í sjónvarpi í íbúðarhúsi á Selfossi

Eldur kviknaði í sjónvarpi í íbúðarhúsi við Kálfhóla á Selfossi skömmu fyrir kl. 10 í morgun. Húsbóndinn á heimilinu tók upp logandi sjónvarpið og kom því út úr húsinu. Slökkvi- sjúkra- og lögreglulið fór þegar á staðinn en þá var sjónvarpið komið út og enginn eldur í húsinu. Ljóst má vera að snarræði húsbóndans hafi orðið til þess að þarna varð ekki stór bruni. Maðurinn brenndis á hendi og hlaut aðhlynningu sjúkraflutningamanna. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið. Tjón á íbúðinni var einungis út frá reyk.