Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. janúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Eldur í íbúðarhúsi á Hólmavík.

Kl.12:12 í dag barst tilkynning frá Neyðarlínunni um að eldur væri laus í tilteknu íbúðarhúsi á Hólmavík. Slökkvilið og lögregla fór þá þegar á vettvang. Eldur logaði í bárujárnsklæddu timburhúsi. Tveir íbúar tilheyra húsinu. Annar þeirra var heima þegar eldsins varð vart en hinn kom aðvífandi. Hvorugan íbúann sakaði. Slökkvistarfi lauk kl.14:12.

Húsið er mjög mikið skemmt. Eldsupptök eru rakin til matseldar.