31. mars 2014
31. mars 2014
Þessi frétt er meira en árs gömul
Eldur í íbúðarhúsi á Eyrarbakka
Slökkvilið, sjúkralið og lögregla eru á Eyrarbakka vegna elds sem kom upp í íbúðarhúsi þar rétt fyrir klukkan ellufu í dag. Talsverður reykur var innandyra. Búið er að slökkva eldinn og verið að reykræsta húsið sem var mannlaust þegar eldurinn kom upp. Við fyrstu sýn er talið að eldurinn hafi kviknað út frá þvottavél. Rannsókn hefst um leið og fært verður inn í húsið.