Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. desember 2005

Þessi frétt er meira en árs gömul

Eldsvoði á Ísafirði.

Fréttatilkynning frá lögreglunni á Ísafirði.

Ísafirði 05. desember 2005.

Klukkan 17:05

Klukkan 15:49 var tilkynnt um eld í íbúð að Aðalstræti 25 Ísafirði. Umrædd íbúð er hluti af húsalengju sem byggt er að meginhluta úr timbri og forskallað að hluta.

Er slökkvilið og lögregla komu á staðinn var nokkur eldur í íbúðinni. Reykkafarar fóru inn í íbúðina og fundu þar einn íbúa þess. Var hann látinn. Enginn annar var í íbúðinni.

Reykskemmdir eru í tveim íbúðum, hárgreiðslustofu og verslun sem áfastar eru íbúð þeirri sem kviknaði í.

Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins á tiltölulega skömmum tíma.

Önundur Jónsson