Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. desember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ekki borgunarmaður

Karl um fertugt var fjarlægður af veitingahúsi í Reykjavík í vikunni, en sá reyndist ekki vera borgunarmaður fyrir veitingunum þegar komið var með reikninginn. Lögreglan var þá kölluð til en hún kannaðist vel við kauða. Maðurinn hefur alloft áður komið við sögu hjá lögreglu vegna sambærilegra mála.