15. september 2011
15. september 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Einn sviptur ökuréttindum á Korpúlfsstaðavegi
Einn ökumaður var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða seint í gærkvöld en viðkomandi var staðinn að hraðakstri á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík, á móts við Brúnastaði. Um var að ræða 17 ára pilt en bíll hans mældist á 108 km hraða þar sem hámarkshraði er 50.