Fara beint í efnið

19. desember 2023

Eingreiðslan greidd í dag

Alls munu 26.031 einstaklingar fá eingreiðslu síðdegis í dag þegar Tryggingastofnun afgreiðir eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.

TRY-Teikning-Gjallarhorn

Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis síðastliðinn laugardag 16. desember og hefur allt kapp verið lagt á það hjá TR að greiðslan berist svo fljótt sem auðið er.

Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2023 og er hún 66.381 kr. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu.

Eingreiðslan telst ekki til skattskyldra tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annarra greiðslna.