17. desember 2025
17. desember 2025
Eingreiðsla desember 2025
Alþingi hefur samþykkt að greiða þeim sem hafa fengið greiddan ellilífeyri, örorkulífeyri, hlutaörorkulífeyri, endurhæfingarlífeyri sem og sjúkra- og endurhæfingargreiðslur frá TR, eingreiðslu í desember. TR mun greiða hana fyrir helgi.

Full greiðsla er 73.390 krónur.
Þau sem voru með greiðslur frá TR hluta úr árinu 2025 fá greitt í hlutfalli við fjölda mánaða sem þau fengu greitt.
Samkvæmt lögunum er eingreiðslan tekjutengd. Frítekjumark vegna hennar á ársgrundvelli er 1.200.000 krónur, en skattskyldar tekjur, svo sem atvinnutekjur, lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur, umfram frítekjumarkið lækka greiðsluna um 3,3% þar til hún fellur niður.
Eingreiðslan er ekki greidd til þeirra sem búa erlendis og verður viðkomandi að hafa haft lögheimili hér á landi 1. nóvember 2025 til að eiga rétt á henni.
Ekki er um að ræða skattskylda greiðslu, en bent er á að eingreiðslan er ekki skattskyld, en hún telst til uppgjörsskyldra greiðslna í uppgjöri TR í vor.
Upphæð eingreiðslu miðað við fjölda mánaða hjá TR
Hér má sjá upphæð eingreiðslunnar eftir fjölda mánaða sem einstaklingur var með greiðsluréttindi á árinu sem uppfylla skilyrði eingreiðslunnar.
Fjöldi mánaða Fjárhæð
1 mánuður 6.116 kr.
2 mánuðir 12.232 kr.
3 mánuðir 18.348 kr.
4 mánuðir 24.463 kr.
5 mánuðir 30.579 kr.
6 mánuðir 36.695 kr.
7 mánuðir 42.811 kr.
8 mánuðir 48.927 kr.
9 mánuðir 55.043 kr.
10 mánuðir 61.158 kr.
11 mánuðir 67.274 kr.
12 mánuðir 73.390 kr.
Eingreiðslan fellur niður við 3.423.930 kr. á ári í tekjur eða 285.328 krónur á mánuði fyrir utan greiðslur frá TR.
Þrjú dæmi um útreikning eingreiðslunnar:
Dæmi 1
Einstaklingur með 60.000 krónur í lífeyrissjóðstekjur á mánuði samhliða greiðslum TR og 20.000 kr. á mánuði í fjármagnstekjur. Viðkomandi er giftur og skiptast því fjármagnstekjur til helminga á milli hjóna. Mánaðartekjur viðkomandi eru því 70.000 krónur á mánuði.
Árstekjur: 840.000 kr.
Frítekjumark: 1.200.000 kr.
Tekjur umfram frítekjumark: 0 kr.
Lækkun vegna tekna: 0 kr. (3,3% af 0 kr.)
Eingreiðsla: 73.390 kr.
Dæmi 2
Einstaklingur með 230.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur á mánuði samhliða greiðslum TR og 15.000 kr. á mánuði í fjármagnstekjur. Mánaðartekjur eru því 245.000 krónur.
Árstekjur: 2.940.000 kr.
Frítekjumark: 1.200.000 kr.
Tekjur umfram frítekjumark: 1.740.000 kr.
Lækkun vegna tekna: 57.420 kr. (3,3% af 1.740.000 kr.)
Eingreiðsla: 15.970 kr. (73.390 kr – 57.420)
Dæmi 3
Einstaklingur með 260.000 kr. í lífeyrissjóðstekjur á mánuði samhliða greiðslum TR og 70.000 kr. á mánuði í fjármagnstekjur. Viðkomandi er giftur og skiptast því fjármagnstekjur til helminga á milli hjóna. Mánaðartekjur viðkomandi eru því 295.000 krónur á mánuði.
Árstekjur: 3.540.000 kr.
Frítekjumark: 1.200.000 kr.
Tekjur umfram frítekjumark: 2.340.000 kr.
Lækkun vegna tekna: 77.220 kr. (3,3% af 2.340.000 kr.)
Greiðsluréttur: 0 kr. (3.830 krónur umfram grunnupphæð og því er enginn greiðsluréttur)
Dæmi 4
Einstaklingur með 285.328 kr. í lífeyrissjóðstekjur á mánuði samhliða greiðslum TR á mánuði.
Árstekjur: 3.423.936 kr.
Frítekjumark: 1.200.000 kr.
Tekjur umfram frítekjumark: 2.223.936 kr.
Lækkun vegna tekna: 73.390 kr. (3,3% af 2.223.936 kr.)
Eingreiðsla: 0 kr. (73.390 – 73.390)