31. mars 2023
31. mars 2023
Eftirlit með drónum í apríl
Eftirlit í apríl - uppfærð frétt 3. apríl
Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga drónum til eftirlits í apríl og eru allar upptökur skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur.
Fiskistofa vil því biðja sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel reglur og lög um stjórn fiskveiða og hafa eftirfarandi atriði í huga:
Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.
Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.
Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.
Sleppa á grásleppu sem fæst í þorskfiskanet.
Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.
Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.
Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.
Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.