13. júlí 2012
13. júlí 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Eftirlit á hjóla- og göngustígum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tekið í notkun tvö rafmagnshjól. Hjólin verða notuð við eftirlit á hjóla- og göngustígum í umdæminu og veitir ekki af. T.d. er mikið kvartað undan rafmagnsvespum og ökumenn þeirra sagðir aka ógætilega. Við eftirlitið verður að sjálfsögðu líka fylgst með umferð annarra tækja á hjóla- og göngustígum og þeim vísað á akbrautir þegar við á.