14. apríl 2011
14. apríl 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Eftirlíking að skotvopni fannst við húsleit
Lögreglan fann eftirlíkingu skotvopns við húsleit í Reykjanesbæ í gærdag. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri en hinn tvítugur voru handteknir í þágu rannsóknarinnar en skotvopnið fannst á heimili annars þeirra. Þessir tveir karlmenn tengjast báðir vélhjólaklúbbi í Reykjanesbæ. Húsleit var einnig framkvæmd á öðrum stað í Reykjanesbæ í tengslum við þetta mál, þar sem m.a. var lagt hald á barefli og peningaskáp. Upphaf þessa máls má rekja til þess að annar mannanna sást með hið ætlaða skotvopn í eftirlitsmyndavél í miðborg Reykjavíkur. Að aðgerðinni stóðu lögregluliðin á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum auk lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra.