Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. júlí 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Eftirför

Hætta skapaðist á fimmta tímanum í dag þegar ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu á miðborgarsvæðinu og reyndi að komast undan. Við tók eftirför en maðurinn ók um miðborgina, vestur í bæ og aftur í miðborgina uns hann nam staðar á Sæbrautinni, nálægt Sólfarinu, þegar dekk sprakk á bifreið hans. Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins, en ökumaðurinn, karlmaður um tvítugt, ók m.a. yfir leyfðum hámarkshraða og gegn einstefnu og setti bæði sjálfan sig og aðra vegfarendur í mikla hættu með þessu framferði. Ökumaðurinn var handtekinn á vettvangi og fluttur á lögreglustöð.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.