3. febrúar 2012
3. febrúar 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
E-töflur haldlagðar á Akureyri
Í gær framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleit vegna gruns um fíkniefnamisferli. Við leitina fundust í íbúð rúmlega 400 e-töflur. Einn maður var handtekinn vegna málsins og yfirheyrður. Hann játaði að eiga töflurnar og að hafa ætlað þær til sölu. Málið er í rannsókn.
Lögreglan vill minna á fíkniefnasímsvarann 800-5005 og netfangið info@rls.is og hvetur fólk til að að koma þar á framfæri ábendingum um fíkniefnamál.