Fara beint í efnið

29. júní 2026

Handhafar námsmannaleyfa þurfa ekki lengur atvinnuleyfi

Mikilvægar breytingar á rétti erlendra námsmanna til atvinnu hafa verið samþykktar.

Með nýlega samþykktum breytingum á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga verða handhafar dvalarleyfa fyrir námsmenn undanþegnir kröfunni um atvinnuleyfi.

Fyrir námsmenn sem eru með gilt dvalarleyfi þýða þetta að:

  • Ekki þarf lengur að sækja um sérstakt atvinnuleyfi til að mega starfa á Íslandi.

  • Heimilt verður að starfa sem launþegi í allt að 60% starfshlutfalli.

  • Áfram er óheimilt að vera sjálfstætt starfandi.

  • Milli anna, svo sem í sumar- og jólaleyfi, er áfram heimilt að starfa í fullu starfshlutfalli.

  • Við endurnýjun dvalarleyfis þarf námsmaður að leggja fram upplýsingar um atvinnuþátttöku sína til staðfestingar á að hann hafi ekki starfað umfram heimilað starfshlutfall. Vinna umfram heimilað starfshlutfall getur leitt til þess að heimild til atvinnuþátttöku verði felld niður.

Sömu heimildir gilda fyrir námsmenn sem sóttu um endurnýjun dvalarleyfis áður en fyrra leyfi rann út og bíða niðurstöðu umsóknar. Umsækjendum um fyrsta dvalarleyfi fyrir námsmenn er hins vegar ekki heimilt að hefja störf fyrr en dvalarleyfi hefur verið gefið út.