8. júní 2023
8. júní 2023
Dvalarleyfi fyrir foreldra og börn í ólögmætri dvöl - Ítrekun
Umsóknir þurfa að berast fyrir 5. júlí 2023.
Með breytingu á lögum um útlendinga geta foreldrar og börn þeirra, sem sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi fyrir 1. ágúst 2021 og eru enn á landinu, sótt um sérstakt tímabundið dvalarleyfi á Íslandi.
Rétturinn nær til forsjáraðila og barna þeirra, yngri en 18 ára, sem
sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi fyrir 1. ágúst 2021 og eru enn á landinu, eða
fæddust á Íslandi á meðan umsókn forsjáraðila um alþjóðlega vernd, sem barst fyrir 1. ágúst 2021, var í vinnslu.
Umsókn þarf að berast Útlendingastofnun fyrir 5. júlí 2023. Ekki þarf að greiða afgreiðslugjald en með umsókninni þarf að leggja fram staðfestingu á því að umsækjandi hafi keypt sjúkratryggingu fyrir sig og börn sín.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má nálgast hér:
Dvalarleyfi fyrir foreldra og börn sem sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi fyrir 1. ágúst 2021