2. mars 2024
2. mars 2024
Drónabann vegna mögulegs eldgoss
Bannið gildir til kl. 23:59 þann 10. mars 2024.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1YCHJHxzdfObae146m41qw/be71839898ca0b9f54b8ded6855e8b68/drone.png?w=50&fm=webp&q=80)
![drone](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/1YCHJHxzdfObae146m41qw/be71839898ca0b9f54b8ded6855e8b68/drone.png?w=774&fm=webp&q=80)
Vegna mögulegs eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í fjögurra kílómetra radius umhverfis hnit 63500N0222338V. Bannið gildir til kl. 23:59 þann 10. mars 2024. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.