Fara beint í efnið

22. janúar 2024

Drónabann framlengt við Grindavík

Bannið gildir til kl. 23:59 þann 9. febrúar 2024.

Mynd dróni lítill

Vegna jarðskjálftavirkni í og við Grindavík og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug á svæði sem nær í fjögurra kílómetra radius umhverfis hnit 6350N 2226W. Bannið gildir til kl. 23:59 þann 9. febrúar 2024. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.