19. ágúst 2025
19. ágúst 2025
Drónabann á Menningarnótt 2025
Að beiðni Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu verður drónaflug bannað yfir miðborg Reykjavíkur vegna Menningarnætur 2025.

Svæðið sem um ræðir er merkt með blárri og rauðri þekju á kortinu hér fyrir ofan og afmarkast af Hringbraut til suðurs og Snorrabraut til vesturs.
Bláa svæðið er lokað frá kl. 07:00 til 15:00 þann 23. ágúst 2025 vegna Reykjavíkurmaraþons.
Rauða svæðið er lokað frá kl 07:00 23. ágúst 2025 til 06:00 þann 24. ágúst 2025 vegna Menningarnætur.
Allt drónaflug er bannað á svæðunum á þessum tímabilum, nema með sérstöku leyfi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Undanþágubeiðnir skal senda til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gegnum netfangið lmde@lrh.is.
Drónabannið er sett á grundvelli d-liðar 3. gr. reglugerðar 1360/2024.