Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. janúar 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dósum stolið úr söfnunargámi björgunarsveitar á Laugarvatni

Lögreglunni á Selfossi hefur borist beiðni um rannsókn á þjófnaði á tómum drykkjarumbúðum úr söfnunargámi björgunarsveitarinnar Ingunnar sem er til húsa að Lindarskógi 7 á Laugarvatni. Grunur er um að þjófnaðurinn hafi átt sér stað frá því í lok september eða byrjun október síðastliðinn fram að áramótum. Aðstandendur björgunarsveitarinnar áætla að verðmæti umbúðanna sem stolið hefur verið sé á bilinu 300 til 600 þúsund krónur. Dágóð upphæð það sem hefði gagnast sveitinni vel til erfiðra og kostnaðarsamra björgunarstarfa í þágu almennings. Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar að hafa samband í síma 480 1010. Hafa skal í huga að lítill vísir getur komið að gagni til að upplýsa málið.