Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. febrúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dóms- og kirkjumálaráðherra heimsækir embætti ríkislögreglustjóra

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra heimsótti embætti ríkislögreglustjóra í dag ásamt embættismönnum ráðuneytisins. Yfirstjórn ríkislögreglustjóraembættisins átti fund með ráðherra um löggæslumál. Að fundi loknum kynnti ráðherra sér starfsemi embættisins og ræddi við starfsfólk.

Á myndinni fyrir miðju er Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra og Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri. Aðrir á myndinni eru Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri, Þórunn J. Hafstein skrifstofustjóri, Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn, Skúli Þór Gunnsteinsson lögfræðingur, Jón F. Bjartmarz yfirlögregluþjónn og Jónas Ingi Pétursson framkvæmdastjóri rekstrar.