Fara beint í efnið

20. desember 2023

Desemberuppbót til einstaklinga sem fá greiddar maka- og umönnunarbætur

Búið er að greiða desemberuppbót til þeirra sem fá greiddar maka- og umönnunargreiðslur. Þau sem fengu greiddar maka- og umönnunargreiðslur á árinu 2023 eiga rétt á uppbótinni.

Tryggingastofnun-Logo

Full desemberuppbót er 60.187 kr. en greitt er í hlutfalli við þá mánuði sem viðkomandi fékk greidda á árinu 2023.

Desemberuppbótin er greidd á grundvelli reglugerðar um desemberuppbætur til maka- og umönnunarbótaþega árið 2023.