Fara beint í efnið

4. desember 2023

Desemberuppbót 2023

Desemberuppbót ellilífeyrisþega örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega var greidd 1. desember ásamt mánaðarlegum greiðslum.

TR logo

Ellilífeyrir
Desemberuppbót ellilífeyrisþega er 70.516 kr. á þessu ári og tekur mið af fjölda mánaða sem viðkomandi fékk greidda á árinu. Þau sem fá greiddan hálfan ellilífeyri fá helming fjárhæðarinnar. Desemberuppbót er tekjutengd eins og aðrar greiðslur til ellilífeyrisþega.

Örorku- og endurhæfingarlífeyrir
Desemberuppbót örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er 30% af mánaðarlegu meðaltali tekjutryggingar á árinu 2023 og 30% af mánaðarlegu meðaltali af greiddri heimilisuppbót. Uppbótin er greidd í samræmi við fjölda mánaða sem viðkomandi fær greiðslur frá TR á yfirstandandi ári. Miðað við fulla tekjutryggingu er desemberuppbót 56.632 kr., en upphæðin breytist í samræmi við það hlutfall sem viðkomandi er með í tekjutryggingu. Þau sem eru með heimilisuppbót fá einnig 19.142 kr. greiddar í desemberuppbót.