Fara beint í efnið

31. maí 2022

Dagur án tóbaks 31.05.2022 - Hættu fyrir umhverfið!

Árlegur alþjóðlegur baráttudagur gegn tóbaksnotkun er í ár helgaður tóbaki sem ógn við umhverfi okkar.

Landlæknir logo

Verndun umhverfisins er enn ein ástæða til að hætta að nota tóbak.

Árlegur alþjóðlegur baráttudagur gegn tóbaksnotkun er í ár helgaður tóbaki sem ógn við umhverfi okkar. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin beinir athyglinni að neikvæðum umhverfisáhrifum tóbaks og varpar ljósi á hnattræn skaðleg áhrif tóbaksnotkunar á umhverfi, efnahag, samfélög og heilsu manna.

Skaðinn sem tóbaksnotkun veldur er vel þekktur en yfir 8 milljónir manna látast árlega af völdum tóbaksnotkunar. Tóbaksframleiðslan skaðar umhverfi okkar allt frá ræktun og framleiðslu, gegnum dreifingu og neyslu og að lokum sem úrgangur. Skaðlegu áhrifin halda áfram að aukast með óþarfa þrýstingi á auðlindir jarðarinnar og viðkvæmt vistkerfi.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hvetur alla, sérstaklega ungt fólk, til að kalla eftir stefnu þar sem tóbaksiðnaðurinn er látinn taka ábyrgð á þeim umhverfisáhrifum sem hann veldur.

Dregið hefur úr reykingum hér á landi undanfarna áratugi, bæði meðal karla og kvenna. Daglegar reykingar mælast nú um 6% það sem af er þessu ári meðal fullorðinna. Hjá ungu fólki 18-24 ára eru daglegar reykingar þó enn minni eða rúmlega 1%.

Notkun á tóbaki í vör sem hefur verið umtalsverð meðal ungs fólks undanfarin ár mælist nú mjög lítil. Notkun á tóbaki í vör er að víkja vegna mikillar aukningar í notkun á nikótínpúðum. Innflutningur á nikótínpúðum til landsins jókst mikið um áramótin 2019-2020. Um þriðjungur karla á aldrinum 18 til 44 ára og kvenna 18 til 24 ára notar nikótínpúða og algengast er að um daglega notkun sé að ræða.

Í janúar síðastliðnum birti heilbrigðisráðuneytið í annað sinn drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um rafrettur í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpsdrögin miða að því að bæta nikótínvörum á borð við tóbakslausa nikótínpúða inn í lögin. Markmiðið er að setja skýrar og heildstæðar reglur um heimildir til innflutnings, sölu og markaðssetningar á nikótínvörum, auk reglna um eftirlit með slíkum vörum til að viðhlítandi öryggi verði betur tryggt. Embætti landlæknis telur nauðsynlegt að lög verði sett sem ná utan um þessar vörur í ljósi aukinnar notkunar þeirra á skömmum tíma.

Hægt er að fá aðstoð að kostnaðarlausu í netspjalli Heilsuveru til að hætta notkun á tóbaki og nikótíni. Netspjall Heilsuveru er opið alla daga frá kl. 8 til 22.

Viðar Jensson
verkefnisstjóri tóbaksvarna