16. janúar 2024
16. janúar 2024
Dagskrá Næringardags SAk – Takið daginn frá!
Næringardagur SAk fer fram miðvikudaginn 28. febrúar milli kl. 13 og 16 í Kjarna, fundarherbergi SAk á 2. hæð Sjúkrahússins á Akureyri. Fundurinn verður einnig aðgengilegur í Teams. Þemað að þessu sinni er: ESPEN guidelines – klínískar leiðbeiningar um sjúkrahúsfæði.
DAGSKRÁ
13:00 | Næring sjúklinga - val á fæði er mikilvægur þáttur í meðferð sjúklings |
---|---|
Áróra Rós Ingadóttir, deildarstjóri Næringarstofu Landspítala, lektor í næringarfræði við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands | |
13:40 | Sérfæði á SAk |
Haukur Geir Gröndal, deildarstjóri eldhúss SAk/ Berglind Soffía Blöndal klínískur næringarfræðingur hjá Heilsuvernd/SAk | |
13:55 | Maukað fæði og þykktir drykkir - af hverju þurfum við mismunandi fæðuáferðir? |
Ingunn Högnadóttir, talmeinafræðingur á SAk | |
14:15 | Kaffihlé |
14:30 | Mikilvægi skimunar fyrir vannæringu |
Berglind Soffía Blöndal, klínískur næringarfræðingur hjá Heilsuvernd/SAk | |
15:00 | Næring í æð - nýjustu leiðbeiningar |
Sandra Dögg Guðnadóttir, lyfjafræðingur og klínískur næringarfræðingur á Landspítalanum | |
15:40 – 15:50 | Samantekt og lokaorð |
Fundarstjórn: Guðjón Kristjánsson yfirlæknir lyflækninga SAk.