Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2026

Dagskrá - Landssamráðsfundur gegn ofbeldi 4. mars 2026

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri bjóða til landssamráðsfundar um aðgerðir til að draga úr og koma í veg fyrir ofbeldi á Íslandi. Fundurinn fer fram á Reykjavík Hilton Nordica en honum verður jafnframt streymt.

Dagskrá:

Markmið fundarins er að efla samráð og þverfaglegt samstarf gegn ofbeldi á Íslandi, með sérstaka áherslu á draga úr ítrekuðu ofbeldi

8:30-9:00 - Húsið opnar

Fundarstjóri: Guðmundur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn við Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar

9:00-9:10 - Setning fundar, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra

9:10-9:35 - „Líkamsmeiðingar, kynferðisofbeldi og manndráp: Hvernig eru ofbeldisbrot á Íslandi?“ Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ríkislögreglustjóri

9:40-9:55 - „Áföll og ofbeldi - og mögulegar afleiðingar.” Sólveig Fríða Kjærnested, sérfræðingur í klínískri sálfræði á geðsviði Landspítalans

Viðmælandi: Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar og varaformaður SÁÁ

09:55-10:10 - „Að brjóta ofbeldishringinn - meðferð foreldra sem beita ofbeldi.“ Paola Cardenas, teymisstjóri CPC-CBT, sálfræðingur og sérhæfður rannsakandi, Barnahús

10:10-10:30 - Kaffihlé (20 m)

10:35-11:00 - Pallborð: „Leiðin út - frá inngripi til endurhæfingar til að draga úr ítrekuðu ofbeldi.“

Eygló Harðardóttir stýrir umræðu:

  • Agnar Bragason, forstöðumaður Batahús karla

  • Sr. Hjalti Jón Sverrissson, fangaprestur Þjóðkirkjunnar

  • Guðmundur Ingi Þóroddsson, forstöðumaður Afstöðu

  • Matthías Matthíasson, geðheilsuteymi fanga

  • Karen Dröfn Hafþórsdóttir, sviðsstjóri meðferðarsviðs Fangelsismálastofnun

  • Sædís Jana Jónsdóttir, sérfræðingur hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu

  • Þóra Kemp, skrifstofustjóri ráðgjafar hjá Kópavogsbæ

11:00-11:15 - „Nálgunarbann, brottvísun og ákvörðun um ákæru - verndarúrræði og framkvæmd í reynd”. Kristmundur Stefán Einarsson, lögreglustjórinn á Austurlandi

11:15- 11:30 - „Hvað er réttlæti í huga þolenda? Uppbyggileg réttvísi og aðrar leiðir“. Dr. Hildur Fjóla Antonsdóttir, lektor við lögreglufræði Háskólans á Akureyri

Viðmælandi: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar

11:30-11:40 - „Taktu skrefið - hefur þú áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni?“ Anna Kristín Newton, sálfræðingur hjá Taktu skrefið

11:40-12:05 – Pallborð: „Hvaða breyttu birtingarmyndir ofbeldis eru þið að sjá á ykkar vettvangi?“

Magga Dóra Ragnarsdóttir stýrir umræðu:

  • Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi Landspítala

  • Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi

  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf

  • Magnús Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands

  • Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís/Fjölmiðlanefnd

  • Svala Jóhannesdóttir, stofnandi Matthildar, samtök um skaðaminnkun

  • Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka

12:05–12:45 - Hádegishlé - Hlé á streymi – komum aftur kl. 14:45 að loknum vinnustofum með niðurstöður, lokapallborð og lokaorð

12:45-14:20 - Vinnustofur

Þátttakendur velja vinnustofu eftir áhugasviði. Hver vinnustofa hefst á stuttum erindum og lýkur með umræðum og 3-4 umbótatillögum

Vinnustofa 1 – Þverfagleg þjónusta við þolendur ofbeldis

Vinnustofan er skipulögð af Öruggara Suðurlandi og þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis

Fundarstjóri: Ellert Geir Ingvason, varðstjóri og samfélagslögga hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi

  • Hvernig getur lögreglan eflt þverfaglega þjónustu við þolendur afbrota? Arndís Soffía Sigurðardóttir, settur lögreglustjóri á Suðurlandi og leiðtogi Öruggara Suðurlands

  • Þjónustumiðstöðvar við þolendur ofbeldis – staða þeirra og hlutverk lögreglu. Kristín Anna Hjálmarsdóttir, sjálfstætt starfandi kynjafræðingur og verkefnisstjóri INTERACT hjá RIKK

  • Hverjir leituðu til þolendamiðstöðva? - Niðurstöður þolendakönnunar lögreglunnar. Dylan Andres Herrera Chacon, sérfræðingur við gagnavísindadeild ríkislögreglustjóra

  • Kynning á starfsemi þolendamiðstöðvanna. Bjarmahlíð, Bjarkarhlíð, Sigurhæðir og Suðurhlíð

Umræður

Vinnustofa 2 – Heimilisofbeldi og landsbyggðin

Vinnustofan er skipulögð af Öruggara Norðurlandi vestra

Fundarstjóri: Ásdís Ýr Arnardóttir, sérfræðingur hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra og leiðtogi Öruggara Norðurlands vestra

  • “Augu þorpsins - félagslegt vald slúðurs, staðalímyndir og kynbundið ofbeldi drusluskömmunar.” Dr. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur í byggðarannsóknum við Háskólann á Bifröst

  • Tilkynningar til barnaverndarþjónustu: Samanburður milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Dr. Eva Dögg Sigurðardóttir, sérfræðingur í teymi tölulegra upplýsinga og rannsókna Barna- og fjölskyldustofa og lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands

  • Heimilisofbeldi á landsbyggðinni – gögn lögreglu. Guðbjörg S. Bergsdóttir, deildastjóri gagnavísindadeildar ríkislögreglustjóra

  • Ráðgjöf til þolenda ofbeldis þar sem allir þekkja alla. Erla Hrönn Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Aflsins

Umræður

Vinnustofa 3 – Ofbeldi og eldra fólk

Vinnustofan er skipulögð af Öruggari Suðurnesjum

Fundarstjóri: María Pálsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum og leiðtogi Öruggari Suðurnesja

  • Heimilisofbeldi og eldra fólk. Daníel Reynisson, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum

  • Heilsuvernd eldri borgara. Hildur Stefánsdóttir og Rósa Víkingsdóttir, hjúkrunarfræðingar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

  • Birtingarmynd ofbeldis gegn eldra fólki. Inga Dóra Jónsdóttir, teymisstýra Suðurhlíðar, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis

  • Að hafa stjórn, fjármál og framtíðarskipulag. Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður á Suðurnesjum

  • Þjónusta við eldra fólk. Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir og Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjórar hjá Reykjanesbæ

  • Sjónarmið eldri borgara – Ágústa Gísladóttir frá félagi eldri borgara í Grindavík og Guðrún Eyjólfsdóttir frá öldungaráði Reykjanesbæjar

Umræður

Vinnustofa 4 – Drengir og karlar sem þolendur ofbeldis

Vinnustofan er skipulögð af ríkislögreglustjóra og EXIT, samráðsvettvangi um leið út úr afbrotum.

Fundarstjóri: Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu

  • „Alltaf elti skugginn.“ Sævar Þór Jónsson, lögfræðingur og rithöfundur

  • Að stíga fram í leit að réttlæti – Börnin í Bakkakoti. Snorri S. Vídal, lögmaður

  • Staða fatlaðra drengja og karla sem þolendur ofbeldis. Eiríkur Smith, réttindagæsla fatlaðs fólks hjá Mannréttindastofnun Íslands

  • Hvernig birtast áföll í meðferðarstarfi við vímuefnavanda? Elías Guðmundsson, forstöðumaður Krýsuvíkursamtakanna

Umræður

14:20–14:45 – Kaffihlé

14:45–15:05 – Kynning vinnustofa: Niðurstöður og tillögur

  • Fundarstjóri frá hverri vinnustofu kynnir helstu punkta frá umræðum

15:05 –15:35 - Pallborð: „Hvernig lítur framtíðin út í baráttunni gegn ofbeldi og afleiðingum þess? Hvaða skref viljum við taka í þeim efnum?“

Dr. María Rún Bjarnadóttir stýrir umræðu.

  • Grímur Grímsson, þingmaður og formaður starfshóps um mótun nýrrar löggæsluáætlunar

  • Margrét María Sigurðardóttir, forstöðumaður Mannréttindastofnun Íslands,

  • Salvör Nordal, umboðsmaður barna

  • Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar

  • Sigurður Örn Hilmarsson, varaþingmaður í allsherjar- og menntamálanefnd

  • Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður og formaður velferðarnefndar

15:35–15.50 - Samantekt og fundi slitið: Grímur Hergeirsson ríkislögreglustjóri

Fundinum verður jafnframt streymt beint.

Nánari upplýsingar veitir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, helena.sturludottir@logreglan.is.