Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. desember 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Dæmdur í 16 mánaða fangelsi

Tomas Malakauskas (Arlauskas) hefur verið dæmdur í 16 mánaða fangelsi en hann var sakfelldur fyrir að hafa fíkniefni í fórum sínum og að hafa brotið gegn endurkomubanni. Tomas var handtekinn í Hafnarfirði 20. nóvember og hefur setið í gæsluvarðhaldi. Hann var á sínum tíma dæmdur fyrir aðild að svokölluðu líkfundarmáli.

Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í dag.