11. apríl 2023
11. apríl 2023
COVID-19 bólusetning í apríl
Bólusetningar gegn COVID-19. Staðsetningar og dagar í apríl.
Við erum að ljúka við að boða 60 ára og eldri í örvunarskammt ef amk 4 mánuðir eru liðnir frá seinustu bólusetningu.
Ef ekki berst boð en óskað er eftir bólusetningu endilega hafið samband á bolusetning@hsa.is eða á móttöku heilsugæslunnar.
Einnig er öllum 18 ára og eldri velkomið að óska eftir örvunarskammti.
ATH! þetta eru síðustu bólusetningardagar þar til í haust.
Bólusetningardagar í apríl
Seyðisfjörður 24. apríl
Djúpivogur 24. apríl
Reyðarfjörður 25. apríl
Egilsstaðir 26. apríl