17. september 2021
17. september 2021
Covid – 19: Aukið aðgengi að hraðprófum með kostnaðarþátttöku ríkisins
Ráðherra hefur ákveðið með reglugerð að sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði við töku hraðprófa hjá einkaaðilum frá og með 20. september.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3hHbVHkBee6hBvJPJohxus/662573a957131341ef7e6e32f0bdf29a/STI_Logo_Litur_transparent.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Sjúkratryggingar lógó](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3hHbVHkBee6hBvJPJohxus/662573a957131341ef7e6e32f0bdf29a/STI_Logo_Litur_transparent.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Þau skilyrði eru gerð til fyrirtækja sem senda Sjúkratryggingum Íslands reikning fyrir slíkum prófum að fyrir liggi staðfesting landlæknis á því að fyrirtækið uppfylli faglegar kröfur, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 415/2004 með síðari breytingum.
Markmiðið er að auka aðgengi almennings að hraðprófum notendum að kostnaðarlausu.