Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. október 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bruni í Vestmanneyjum

Konan sem handtekin var í Vestmannaeyjum vegna brunarannsóknarinnar frá í gær er í haldi lögreglunnar á Selfossi. Krafa um gæsluvarðhald yfir henni var gerð fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var fengin til að flytja hana til lands svo unnt væri að leiða hana fyrir dómara innan tilskilns frests þar sem ófært var fyrir annað flug til Eyja vegna skyggnis. Dómari tók sér frest til kl. 16:00 til að taka afstöðu til kröfunnar.

Rannsókn málsins miðar vel áfram en rannsóknardeild lögreglunnar á Selfossi ásamt lögreglunni í Vestmanneyjum og tæknideild Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins vinnur að henni.