Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

20. janúar 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Bruni í Þorlákshöfn í morgun

Lögreglan í Árnessýslu hefur í samvinnu við Lögreglu Höfuðborgarsvæðisins handtekið 5 aðila vegna rannsóknar á bruna í íbúðarhúsi við Norðurbyggð 18A í Þorlákshöfn í morgun. Vísbendingar eru um að um íkvekju hafi verið að ræða og óskar lögregla eftir upplýsingum um mannaferðir í Þorlákshöfn eftir kl. 04:00 s.l. nótt. Rannsókn málsins er á viðkvæmu stigi og ekki er unnt að veita frekari upplýsingar um gang hennar að svo komnu máli.

Sími lögreglu á Selfossi er 480-1010